Fjölnir Þorgeirsson er ræktandi og tamningarmaður Hásætis.

Tíbrá frá Búlandi og Fjölnir

Fjölnir Þorgeirsson hefur verið í kringum hross frá því að hann var smá polli í sveit, áhuginn var gríðarlegur og ekki annað hægt en að byrja aftur í hestunum. Hann byrjaði aftur í hestunum af miklum krafti árið 2001. Fjölnir hefur verið duglegur á keppnisbrautinni undanfarin ár og náð frábærum árangri.

Flosi frá Búlandi LM 2011

Hans sterkasta keppnisgrein er skeið, hann og Lukkublesi hafa gert garðinn frægan á skeiðbrautinni og unnið til margra verðlauna. Fjölnir lauk frumtamninga og þjálfunarprófi FT árið 2005 og Gæðingadómaraprófi árið 2007.

Fjölnir og Kveldroði á kynbótasýningu á Gaddstaðarflötum 2011

Ræktunin á Hásæti hefur gengið mjög vel fyrsta hryssan sem keypt var inn var Náttfaradóttirin Birta frá Skarði og fannst Fjölni hún vera spennandi verkefni þar sem Náttfari var í gamla daga uppáhalds stóðhesturinn hans. Birta var þjálfuð af Fjölni og fór hún í 1. verðlaun eftir að hafa eignast 3 folöld. Fyrsta afkvæmið hennar Maístjarna flaug í 1 verðlaun og síðan var stóðhesturinn Kveldroði sýndur og fór hann einnig í 1 verðlaun. Birta er svo sannarlega kynbótahryssa.

Hér er Birta með afkvæminu sem fæddist sumarið 2011 og fæddist hún daginn sem Kveldroði fór í 1 verðlaun og fékk hún nafnið Kynbótastjarna

Kolka frá Keisbakka og Þórður Þorgeirsson
Kolka frá Keisbakka er síðan önnur hryssan sem var keypt inn. Hún var einnig þjálfuð af Fjölni og fór hún í 1 verðlaun með 8,33 fyrir hæfileika. Kolka hefur eignast 5 afkvæmi en aðeins eru 3 lifandi þar sem heppnin var ekki með okkur, afkvæmin létust af ýmsum ástæðum. En tveir eru tamdir og eru þeir mjög góðir hestar og lofa góðu á keppnisbrautinni. Síðan er það hryssan Tíbrá frá Búlandi hún er 1 verðlauna hryssa og systir heimsmeistarans Klakks frá Búlandi sem allir muna eftir. Núna eru fimm 1. verðlauna hryssur í ræktuninni og lofa trippin sem eru að koma inn mjög góðu.

fjolnir@hestafrettir.is sími +354-8960006